Breskar sundlaugar
19. nóvember 2007 klukkan 16:27
Ég ákvað áðan að skella mér í sund því Friðrik var að fara í ræktina með Adda. Hérna rétt hjá okkur er semsagt líkamsrækt og sundlaug. Allaveganna, ég byrjaði á því að fara inn í búningsklefann, þar voru fáar konur, flestar þeirra voru inní svona sér búningsklefum, væntanlega vegna spéhræðslu..
Svo var ég ekki viss sko hvort að maður ætti að fara nakinn í sturtu hér, ég hafði heyrt að maður færi bara í sundfötunum beint í sturtu og svo útí laug, uppúr lauginni, í sturtu...í sundfötunum..ferð ekkki úr þeim til að þrífa þig, svo bara beint inn í litla búningsklefann þinn og klæðir þig úr sundfötunum þar sem enginn sér þig.
Ég ákvað svo að fara bara í sundfötunum í sturtuna, og það var rétt, allir þar í sundfötunum. Svo fór ég bara að synda, sem var bara rosa fínt, ekkert óvenjulegt þar nema kannski að þeir dæla meiri klór heldur en vatni í laugina.
Svo fór ég uppúr og ákvað að gerast kræf og vera bara nakin, og ég get sagt ykkur það, að bretar fíla það ekki. Það var alveg soldið starið á mig.
Ég veit ekki alveg hvað er að þessu fólki, en þetta er ekki hollt að hálfbaða sig svona..pfff..
dB

Afmæli
17. nóvember 2007 klukkan 10:44
Jáá.
Hún Brynja á afmæli á morgun, þannig í kvöld er rosa partý hérna hjá Íslendingunum í London. töff töff..
Ég minni líka á að ég er aftur komin með flickr..ég nefnilega klúðraði alveg hinu flickrinu mínu, því ég gleymdi lykilorðinu mínu þar, damn. Eeen ekki örvænta, nýja flickerið er flickr.com/photos/druplisch..
Við erum líka núna bæði búin að kaupa flug heim um jólin. Komum hvorki meira né minna en 12 desember og förum svo aftur heim 8 janúar, þannig þetta er næstum því mánuður !! Það verður gott að koma heim og fara í almennilegt jólaskap þar, janfvel baka og svona, og opna pakka...jessssssss
Ég þarf líka að fara og finna nokkrar góðar jólagjafir hérna í London, nóg til. Það er allaveganna búið að skreyta þessa borg sinnum milljón..eða ég segi það kannski ekki en það er allaveganna búið að skreyta mikið. Núna í Desember eða í lok Nóvember verður líka opnað svona risa skautasvell í Hyde park, þar sem hægt er að kaupa fullt af dóti í einhverjum básum sem eru þar og jólaglögg, og fara á skauta og í parísarhjól. Maður ætti kannski að skella sér þangað, sjá hvernig fólkið hérna kemur sér í jólaskap.. Jólin hérna hljóma samt ansi óspennandi; margir panta sér bara borð á einhverjum pöbb, eða jafnvel veitingastað og borða þar jólamat á aðfangadagskvöld og detta jafnvel soldið vel í það, vakna svo daginn eftir og opna pakka. Pfff...
En nóg í bili. Ég ætla að drífa mig út í kuldann..brr

bloggleysi?
09. nóvember 2007 klukkan 12:15
Þetta bloggleysi á mér er agalegt !!!!!!! Ég bara kem ég aldrei í það að setjast bara niður og blogga. Og aldrei kem ég mér í það að setja inn myndir á flickr síðuna mína, sem Ragnheiður er búin að grátbiðja mig um trekk í trekk. Ég ætti bara að skammast mín ! Ekkert flóknara en það!!
Ég sit hérna ein heima á föstudegi, það er kalt úti þannig ég nenni ekki að klæða mig til að fara útí banka, og ég nenni heldur ekki að læra, vaska upp, búa um nér hengja upp þvottinn...töff ég. Þannig kannski segja má að ég sé löt? Já orðum það þannig.
Um helgina síðustu var besta og mesta Íslendingapartý sem ég hef á ævi minni farið í. Við vorum svona 12 manns komin saman heima hjá Jökli og Freydísi og djömmuðum við það langt frammá nótt..meira samt langt frammá morgun.....
Minni líka á að svalirnar þeirra er stærri en íbúðin sjálf, sem er alltaf fjör. Án gríns, þau gætu farið út að skokka þar á hverjum morgni...
Svo er þessi vika aðallega búin að fara í það að vera í skólanum og læra...afskpalega lítið búið að drífa mína daga, eða hvernig sem maður segir þetta orðatiltæki.
Svo styttist óðum í jólin...sem er ekki leiðinlegt, þá eignast ég líka frændsystkini!!
En ég ætla að hoppa uppúr letinni og gera eitthvað(right)
dr