Aðalvalmynd

Klukkan

íbúð

26. janúar 2007 klukkan 01:43

Gott fólk, við erum búin að finna íbúð. Hún er mjög vel staðsett, gott fyrir okkur bæði að komast í skólann, Friðrik getur meira að segja ábyggilega labbað, en ég fer enn bara með lestinni, sem er aðeins styttra en það sem ég þarf að fara núna.
Hún er bara ágætlega rúmgóð, með alveg góðu svefnherbergi og stofu sem svefnsófinn er í, þannig allir geta núna komið í heimsókn, og búumst við líka alveg við ágætlega miklum gestagang framundan, sem er náttúrulega bara mjög gott mál. Eldhúsið er fínt og svo er væntanlega baðherbergi. Hún er alveg í dýrari kantinum en við erum mjög ánægð með hana.
Fáum við hana svo afhenta  2 febrúar, þannig það styttist óðum í það

En meira nenni ég ekki að blogga í bili

Ciao

Db

Bókatíðindi

24. janúar 2007 klukkan 03:08
Jæja, þá er bókin sem ég er að búa til í skólanum hálfnuð. Þetta er sem sagt í tíma sem heitir foundation studio, og bý ég til ýmislegt þar. Ég eyddi alveg þrem tímum áðan í að sauma saman blaðsíður ! úff sko....mikið þolinmæðisvinna. Ég hlakka samt til að klára hana, þá get ég kannski dundað mér við að búa til fleiri....

Við Frikki fórum út að borða á sunnudaginn á Tyrkneskan veitingastað og á borðinu við hliðiná okkur sátu þrjár manneskjur, tveir frá portúgal og einn frá tyrklandi, og allt í einu byrjuðu þau bara að spjalla við okkur á fullu og forvitnast um ísland og svona, og skiptumst við á e-mailum, og bara strax næsta morgun vorum við Frikki bæði komin með e-mail frá þeim. ! Rosalega fyndið. Þau voru öll arkitektar og mjög næz, ég kann vel að meta svona. Ætli við skellum okkur ekki út að hitta þau einhvern tímann.
Við Frikki fórum að skoða eina íbúð í gær. Hún var alveg frekar stór og á viðráðanlegu verði go svona, í alveg ágætu hverfi og ekkert svo langt frá því sem við erum núna, en þetta var í frekar svona skítugri blokk, okkur leist ekki alveg nógu vel á þetta, en íbúðarleitin er rétt að byrja, ég hlakka bara til að skoða meira.

Annars er ekkert mikið meira í fréttum, það er eiginlega rosalega kalt hérna núna, þannig við erum búin að kveikja á ofnunum, annars myndum við öll frosna. Og já, það býr mús í eldhúsinu, er búin að koma sér vel fyrir þar, hehehe.

En í bili, yfir og út

Droplaug



Hey hó hó

20. janúar 2007 klukkan 19:33
Ok ég veit núna símanúmerið mitt og það eeeeeer...... 07805446109 !!
Þá eru allir komnir með það á hreint, og ég líka !

En burt séð frá því þá er allt hresst hér í London, við fórum og hittum Brynju, hún var með mér í MH og hún býr hér í London líka, og nokkra vini hennar, svo bættust við vinir hans Frikka, sem Frikki er að leigja með og ég bý með einsog er, þannig þetta var komið alveg fullt af fólki, bara íslendginum, og skelltum vð okkur á barinn og svona. Það var mjög gaman. Mikið gaman, mikið fjör.

Svo er ég bara á leiðinni til Amsterdam eftir þrjár vikur, við ákváðum að skella okkur þangað og fáum við að vera hjá Lilju frænku, ekki amalegt. Það er nefnilega svo rosalega ódýrt að fljúga hérna innan evrópu, eða allaveganna frá bretlandi, algert grín bara. Um að gera að nýta sér þetta.

Annars gengur skólinn ennþá vel, ég var að læra að binda inn og búa til bækur í síðasta tima, sauma saman blaðsíðurnar og líma og hanna forsíðu og svona.

Ég bið hins vegar að heilsa í bili, er farin í bæinn að láta taka þófavörnina af peysunni sem ég keypti í gær(flott hjá þeim afgreiðslumanni) og svo að kíkja smá á tate modern.

ciao amigos

Ég er komin með símanúmer...

16. janúar 2007 klukkan 19:01
en.....ég man það aldrei og friðrik er með það í símanum sínum og hann er ekki heima, þannig ég verð bara að setja það inn í næstu færslu !

Ég fór í kynningu í skólann minn í gær. Það eru aðallega bandaríkjamenn þar, nokkrir frá Asíu og Bretlandi, og svo er ég eini íslendingurinn. Það hafa samt víst verið íslendingar þarna. En já, aftur að kynningardeginum. Við löbbuðum um alla lóðina sem skólinn er á, hann er í nokkum byggingum víðsvegar um þessa götu. Ég er samt aðallega bara í einni. Þetta er skipt niður í deildir, ein byggingin er bara business bygging, ég er t.d aldrei þar. Svo er soldið magnað, jafnvel næstum því MAGNIficent að það eru tvö bókasöfn ! Já gott fólk, það er það sem mér fannst aldeilis merkilegt, kannski er ég bara svona lítil ennþá, en eitt bókasafnið er bara fyrir blöð og hitt bækur!!!!!!
Stundataflan mín er líka góð, ég á ekki að mæta í skólann fyrren klúkkan 16.30 í dag ! Talandi um að geta sooooofiiið út......

Veðrið er frekar gott hér miðað við að það er hávetur..eða er allaveganna búið að vera það. Það er alvge smá kalt, sérstaklega á kvöldin, en þa´ð er engin rigning eða snjór og maður þarf ekki að dúðra sig up áður en maður fer út.

En nóg í bili, ég þarf að fara að koma mér á fætur, klúkkan er a ganga tvö...

Droplaug

Jæja...

15. janúar 2007 klukkan 02:23
Ég er komin til London. Kom í gærmorgun. Það var rosa gott, en rosalega mikill farangur fylgdu mínum flutningum, þannig að við þurftum að ferðast með tvær risatöskur, eina rooosalega þunga sem innihélt fullt af bókum og fartölvunni og annarri lítilli tösku, þannig þetta var orðið rosalega þungt allt saman. Að sjálfsögðu tókst mér einnig að brjóta hjólið undan annarri ferðatöskunni, en ég meina, við hverju er að búast þegar svona mikið er í töskunni?

í dag fór ég uppí skólann minn. Hann er rosalega miðsvæðis, nokkra mínutna labb á oxford street og svona, það er ekki verra. Ég hitti svona "námsráðgjafa minn". Allir ekkert smá næs þarna og notalegir. Ég fór svo í stöðupróf í ensku, það tók alveg tvo tíma.
Svo fórum við og versluðum í matinn áðan og svona, annar stór dagur á morgun, þá er svona kynningadagur í skólanum, ég hlakka mikið til að sjá restina af skólanum...

En allaveganna, ég blogga meira síðar. Bið að heilsa frostinu og snjónum, hér er grasið grænt, þó svolítið kalt, en alveg alltílagi.


Droplaug

Prófíll

  • Nafn: Droplaug Benediktsdóttir
  • Staður: London

Auglýsing

Leikur dagsins

Atburðarteljari