Aðalvalmynd

Klukkan

10. desember 2007 klukkan 15:42
Jæja, enn og aftur er ég dottin inn í það að vera slök við að blogga. Og ég get nú líka bara lofað að ég mun ekki vera dugleg næsta mánuðinn, þar sem ég verð á íslandi, en það er aldrei að vita nema ég hendi inn nokkrum setningum, bara svona því að það eru að koma jól.

Helgina 22-25 Nóvember kom mamma hans Friðriks í heimsókn. Það var rosa gaman, mikið labbað og skoðað. Það er rosa gaman að fá gesti því maður hefur varla séð neitt í þessari borg áður þó maður búi nú hér. En já við röltum semsagt mikið um og skoðuðum mörg mjög skemmtileg söfn einsog til dæmis Florence Nightingale, Museum of London og Viktoria and Albert Museum.
Merkilegt að segja frá því að við skoðuðum merkilega deild í Viktoria and Albert Museum, sem var semsagt silfurdeildin.
Þar var að finna alveg óteljandi gamla silfurmuni, til dæmis voru leikföng úr silfri þarna; pínulitlir gaflar og hnífar og stólar og rúm og svona sem hægt var að leika sér með í dúkkuleikjum og þar fram eftir götunum. Að hugsa sér að á þessum tíma höfðu flest allir ekki neitt til að lifa á en sumir fengu leikföng úr silfri..
Annars kíktum við líka í St. Paul´ss Cathedral, þar sem Díana Prinsessa og Karl Bretaprins giftu sig árið 1981.
Þetta var alveg rosalega falleg kirku og það var hægt að labba upp einhver 250 þrep til að komat upp að toppnum á kirkjunni. Við skelltum okkur upp 163 þrep, það var alveg nógu erfitt. En kannski svolítill galli við kirkjuna er sá að núna er hún orðin svo túristavæn og það er bara fólk útum allt þar inni, sem er svolítið leiðinlegt en kannski óhjákvæmilegt. Annars stórkostleg kirkja.

Svo er bara búið að vera rosalega mikið að gera í skólanum. ég tók aðeins meira þessa önnina í skólanum og ætla að halda því áfram, þannig maður var nú alltaf með nóg að læra, en alltaf jafn skemmtilegt og fjölbreytilegt. Á morgun fe rég svo bara í eitt lokapróf og svo komum við bæði til íslands á miðvikudagskvöldið og verðum alveg til 8 janúar, en þá þurfum við að drífa okkur aftur í skólann.

dB
fara vera duglegri í ræktinni og fara svo öll 250 þrep auli ;)

gangi þér annars vel í prófinu og góða ferð og sjáumst á íslandi beibí
#1
11. desember 2007 klukkan 10:56
Hey babycakes! Mikið var að þú skelltir inn einni færslu eða svo! Mikið hlakka ég til að sjá þig um jólin litla hommatrítla sem getur ekki labbað upp stiga fyrir gamalt fólk, er viss um að ég gæti 164 þrep, ójé! og ps. þú er mega sæt svo passaðu þig gæti óvart borðað þig í staðinn fyrir smákökurnar.
#2
11. desember 2007 klukkan 22:28
 
Droplaug
Fanney fanney þú gæætir sko barasta aldrei labbað þetta !! ég gat að samt, var bara soldið erfitt !!
Ekki borða mig:(
Hringdu í mig þegar að þú kemur.
#3
12. desember 2007 klukkan 13:07
haha, það er líklegast rétt hjá þér, kæmist kannski upp fimm þrep á góðum degi. Svo skal ég reyna að hafa hemil á mér og sleppa því að borða þig en ég mun hringja strax og á klakann er komið.
#4
16. desember 2007 klukkan 22:07
 
Brynja
dautt blogg?
#5
11. febrúar 2008 klukkan 20:36
 
Droplaug
ég var semí búin að gleyma blogginu, kippi þessu í lag við tækifæri..
#6
13. febrúar 2008 klukkan 14:01

Skrifa athugasemd

Prófíll

  • Nafn: Droplaug Benediktsdóttir
  • Staður: London

Auglýsing

Leikur dagsins

Atburðarteljari