Aðalvalmynd

Klukkan

03. september 2007 klukkan 18:49
Ég er einfaldlega ekki nógu góður bloggari, ég er búin að komast að því. Ég gleymi bara svo oft að ég er með blogg, og svo þegar ég man það, þá sest ég niður og ætla að skrifa eitthvað, en þá er bara svo margt búið að gerast að: a) ég ómögulega nenni að skirfa um allt sem er búið að gerast, eða b) Ég þjáist af minnisleysi þessar mínútur sem ég ætla að skrifa eitthvað.
Þannig ég biðst afsökunar á því.

Það býr einhver undarlega manneskja, eða vera rétt hjá okkur, sem hefur öskrað tvær nætur á síðustu vikum. Það er krípí, en samt afskaplega áhugavert, því þetta eru svo undarleg og regluleg HÁ öskur.

Ég er búin að  vera að læra á Illustrator forritið og Photoshop mikið síðustu daga, af því ég er að gera barnabók sem ég nota þessi forrit í, og er óhætt að segja að ég er bara helvíti góð !

Það er kalt úti, sumarið er ekki búið að vera að standa sig í bretlandi.

Ég komst hins vegar að því í sumar að ég er góður surfari, og JÁ, það er surfað í bretlandi.

Ég er að fara að búa til skál, sem ég hlakka mikið til, og er á fullu að brainstorma hugmyndir um hvernig hún ætti að líta út.

Beastie boys eru að spila í London í næstu, eða þarnæstu viku og mig langar að fara.

Ég mæli EKKI, ég endurtek, EKKI með mynd sem heitir The walker og er með Woody Harrelson í aðalhlutverki. HÚN ER LEIÐINLEG. Við gerðum nokkur heiðarlega tilraun við það í gærkveldi, og GMG sko. Ekki nema þú sért hluti af upper class fólki í Washington, eða hrífst af þeirra lífsstíl og vilt tala asnalega.

Jæja ég vil nú samt ekki skíta of mikið yfir þessa mynd, hún var kannski ágæt. Samt ekki. Vonandi særði ég engann með dómum mínum.

Helga kom hér í nokkra klukkutíma í síðustu viku, beint frá Thailandi, og sýndi okkur myndir af GEÐVEIKUM ströndum þar..ahh Thailand er fallegt land.

Nýjasti gripurinn á þessu heimili er HITCHCOCK safnið; eða 14 myndir, aðal myndirnar hans. Við höfum bara horft á eina mynd enn sem komið er. Ég man eftir því að hafa séð brot úr einni mynd með honum, BIRDS, fyrir svona 10 árum og þá var ég með systur minnir. Hún var einstaklega ógeðsleg. Ég held ég sé tilbúin að horfa á hana núna samt.

Ég ætla að fara að læra meira á þessi forrit. I am loving them.
Later

db


Hæ hæ

Oj ég man eftir því þegar við horfðum á þessa mynd, eða hlutann af henni, hún var ógeð, vona að þú sért tilbúin til að horfa á hana núna, ég er það pottþétt ekki.....

Annars allir hressir og bumban stækkar og stækkar. Bíðum spennt eftir að fá þig heim, er það ekki bara í þessum mánuði???????

Kv.
Arna
#1
03. september 2007 klukkan 23:09
 
Droplaug
Hehehe já hún var virkilega ógeðsleg. Ég ætla að láta reyna á hana núna, læt þig vita hvernig hún er;)
Já ég hlakka til að koma heim og sjá strákana og bumbuna. Við komum ábyggilega bæði svona 24 septmeber, svo fer ég svona 3 okt. heim.
#2
04. september 2007 klukkan 15:13
Ég kem einmitt líka heim frá Köben 24. sept...
#3
04. september 2007 klukkan 21:17
 
Brynja
ég gæti bara ekki verið sáttari með dómana þína á þessari blessuðu mynd.....ég segi að það verði hitchcock á sunnudaginn! hann getur ekki klikkað!
#4
05. september 2007 klukkan 10:20
 
helga lucie
þökk sé hverjum að þú eigir hitchcock?
#5
06. september 2007 klukkan 16:50

Skrifa athugasemd

Prófíll

  • Nafn: Droplaug Benediktsdóttir
  • Staður: London

Auglýsing

Leikur dagsins

Atburðarteljari