Aðalvalmynd

Klukkan

Lélegur bloggari???????

21. ágúst 2007 klukkan 19:14
Ég er búin að fá miklar skammir og mörg blótyrði yfir því hversu lélegur bloggari ég er, þess vegna hef ég ákveðið að koma með eina dúndurlanga (eða eins langa og ég nenni)-færslu núna.
Það er bara varla að ég viti hvar ég á að byrja.
Ég fór til Íslands í lok júlí. Það var allveg frekar mikið gaman, Íslensk sumur eru náttúrulega bezt í heimi, það er bara þannig. Það var að minnska kosti betra veður þar (þó margir segja að það hafi búið að vera miklu betra áður en ég kom), en er búið að vera hérna í London í sumar. Okkar sumar kom greinilega í apríl, þegar það var alveg 26 stiga hiti og sól. Reyndar eru búnir að koma nokkrir afskaplega góðir dagar, þannig ég ætla að hætta að kvarta yfir veðrinu núna.
Það er alveg frekar mikið að gera í skólanum núna, þessi önn klárast í lok september, þá ætla ég að skella mér heim í nokkra daga. Á næstu önn ætla ég svo að taka fleiri áfanga, svo ég geti klárað fyrr og sparað pening.
En það sem er svona eftirminninlegast í huga mér núna er að við, semsagt ég og Friðrik, Brynja og Jói skelltum okkur til Belgíu síðasta fimmtudag. Þar fórum við á tónlistarhátíðina PUKKELPOP, sem stóð fram á sunnudag. VÁÁÁÁ sko.....hvar get ég byrjað að segja frá henni ! Til að byrja með tjölduðum við, keyptum bjór og vorum stanslaust á GEÐVEIKUM tónleikum í þrjá daga ! Hversu geðveikt er það???? Nokkrar af hljómsveitunum sem ég sá: Smashing Pumpkins, Devandra Banhart, Justice, Armand Van Helden, Sonic Youth, Albert Hammond Junior, The streets, Kings of Leon, Tool, The Shins, Silverchair,The Hives, Arcade Fire, Architecture in Helsinki, Basement Jaxx...og þetta heldur áfram og áfram....

Svo komu líka Anna Dúna og Frikki í heimsókn í viku. Það var mega stuð, Við reyndum að sýna þeim sem mest, og þau fóru meir aa segja ein í lestina !!!!!!!! Húrra fyrir þeim ! Á öðrum degi...össs ! En já, við sáum líka Abbey Road, sem var bara mjög merkilegt, eins og það var nú samt líka ómerkilegt.
Á sama tíma og þau voru hérna Kom Calista og kærastinn hennar, sem Calista sem var stelpan sem ég bjó hjá í Ástralíu. Það var mjög skrýtið að hitta hana eftir svona langan tíma, 3 ár, en við náðum bara vel saman.

Og já, ég varð 21 árs 11 ágúst.....vúhú !!!!!!!!!

Þetta er nú nóg í bili. Ég lofa að blogga meira mjöööööög fljótt.

 
Brynja
húrra....það var mikið að það koma blogg! skemmtið ykkur vel í ikea....heyrumst í kvöld ;)
#1
24. ágúst 2007 klukkan 10:26

Skrifa athugasemd

Prófíll

  • Nafn: Droplaug Benediktsdóttir
  • Staður: London

Auglýsing

Leikur dagsins

Atburðarteljari