Aðalvalmynd

Klukkan

13. febrúar 2008 klukkan 14:10
Margt hefur drifið mína daga frá síðustu bloggfærslu, enda skrifaði ég hana hvorki meira né minna en á síðasta ári !! Svona er þetta bara með þessa traffík hérna í London, alltaf allt á billjón.
Skólinn gengur bara dúndur vel, ég mun útskirfast núna í Desember með Bachelor og fine arts, eða BA in visual communication. Núna geta allir verið með það á hreinu, þar sem fæstir vita nákvæmlega hvaða gráðu ég er að fá. Mikil vinna framundan, þar sem ég þarf að byrja í vor á BA-ritgerðinni minni og svo er ég alltaf að safna í portfolioið. Friðrik útskrifast í lok September þannig þá höldum við heim á leið..

í dag komst ég að því að það er endalaust mikið af ám undir stórborginni London !!!! Og þá er ég ekki að meina ám sem hafa þornað, nei nei, bara undir allri borginni eru ár sem eru ennþá í fullu fjöri og rennandi!! Merkilegt !! Það fannst mér að minnsta kosti.
ég hugsa að það sé sniðugt að ég fari að koma með meiri svona upplýsingar um London, þetta er merkileg borg !

Það er sól úti í dag, sem er ekki slæmt. Það er reyndar búið að vera alveg ágætt veður og sól undanfarið, sem er ábyggilega skárra en stórhríðirnar og snjórinn á Íslandi, hehe.

Þangað til næst, lifið heil..

10. desember 2007 klukkan 15:42
Jæja, enn og aftur er ég dottin inn í það að vera slök við að blogga. Og ég get nú líka bara lofað að ég mun ekki vera dugleg næsta mánuðinn, þar sem ég verð á íslandi, en það er aldrei að vita nema ég hendi inn nokkrum setningum, bara svona því að það eru að koma jól.

Helgina 22-25 Nóvember kom mamma hans Friðriks í heimsókn. Það var rosa gaman, mikið labbað og skoðað. Það er rosa gaman að fá gesti því maður hefur varla séð neitt í þessari borg áður þó maður búi nú hér. En já við röltum semsagt mikið um og skoðuðum mörg mjög skemmtileg söfn einsog til dæmis Florence Nightingale, Museum of London og Viktoria and Albert Museum.
Merkilegt að segja frá því að við skoðuðum merkilega deild í Viktoria and Albert Museum, sem var semsagt silfurdeildin.
Þar var að finna alveg óteljandi gamla silfurmuni, til dæmis voru leikföng úr silfri þarna; pínulitlir gaflar og hnífar og stólar og rúm og svona sem hægt var að leika sér með í dúkkuleikjum og þar fram eftir götunum. Að hugsa sér að á þessum tíma höfðu flest allir ekki neitt til að lifa á en sumir fengu leikföng úr silfri..
Annars kíktum við líka í St. Paul´ss Cathedral, þar sem Díana Prinsessa og Karl Bretaprins giftu sig árið 1981.
Þetta var alveg rosalega falleg kirku og það var hægt að labba upp einhver 250 þrep til að komat upp að toppnum á kirkjunni. Við skelltum okkur upp 163 þrep, það var alveg nógu erfitt. En kannski svolítill galli við kirkjuna er sá að núna er hún orðin svo túristavæn og það er bara fólk útum allt þar inni, sem er svolítið leiðinlegt en kannski óhjákvæmilegt. Annars stórkostleg kirkja.

Svo er bara búið að vera rosalega mikið að gera í skólanum. ég tók aðeins meira þessa önnina í skólanum og ætla að halda því áfram, þannig maður var nú alltaf með nóg að læra, en alltaf jafn skemmtilegt og fjölbreytilegt. Á morgun fe rég svo bara í eitt lokapróf og svo komum við bæði til íslands á miðvikudagskvöldið og verðum alveg til 8 janúar, en þá þurfum við að drífa okkur aftur í skólann.

dB

Breskar sundlaugar

19. nóvember 2007 klukkan 16:27
Ég ákvað áðan að skella mér í sund því Friðrik var að fara í ræktina með Adda. Hérna rétt hjá okkur er semsagt líkamsrækt og sundlaug. Allaveganna, ég byrjaði á því að fara inn í búningsklefann, þar voru fáar konur, flestar þeirra voru inní svona sér búningsklefum, væntanlega vegna spéhræðslu..
Svo var ég ekki viss sko hvort að maður ætti að fara nakinn í sturtu hér, ég hafði heyrt að maður færi bara í sundfötunum beint í sturtu og svo útí laug, uppúr lauginni, í sturtu...í sundfötunum..ferð ekkki úr þeim til að þrífa þig, svo bara beint inn í litla búningsklefann þinn og klæðir þig úr sundfötunum þar sem enginn sér þig.
Ég ákvað svo að fara bara í sundfötunum í sturtuna, og það var rétt, allir þar í sundfötunum. Svo fór ég bara að synda, sem var bara rosa fínt, ekkert óvenjulegt þar nema kannski að þeir dæla meiri klór heldur en vatni í laugina.
Svo fór ég uppúr og ákvað að gerast kræf og vera bara nakin, og ég get sagt ykkur það, að bretar fíla það ekki. Það var alveg soldið starið á mig.
Ég veit ekki alveg hvað er að þessu fólki, en þetta er ekki hollt að hálfbaða sig svona..pfff..

dB

Afmæli

17. nóvember 2007 klukkan 10:44
Jáá.
Hún Brynja á afmæli á morgun, þannig í kvöld er rosa partý hérna hjá Íslendingunum í London. töff töff..

Ég minni líka á að ég er aftur komin með flickr..ég nefnilega klúðraði alveg hinu flickrinu mínu, því ég gleymdi lykilorðinu mínu þar, damn. Eeen ekki örvænta, nýja flickerið er flickr.com/photos/druplisch..

Við erum líka núna bæði búin að kaupa flug heim um jólin. Komum hvorki meira né minna en 12 desember og förum svo aftur heim 8 janúar, þannig þetta er næstum því mánuður !! Það verður gott að koma heim og fara í almennilegt jólaskap þar, janfvel baka og svona, og opna pakka...jessssssss
Ég þarf líka að fara og finna nokkrar góðar jólagjafir hérna í London, nóg til. Það er allaveganna búið að skreyta þessa borg sinnum milljón..eða ég segi það kannski ekki en það er allaveganna búið að skreyta mikið. Núna í Desember eða í lok Nóvember verður líka opnað svona risa skautasvell í Hyde park, þar sem hægt er að kaupa fullt af dóti í einhverjum básum sem eru þar og jólaglögg, og fara á skauta og í parísarhjól. Maður ætti kannski að skella sér þangað, sjá hvernig fólkið hérna kemur sér í jólaskap.. Jólin hérna hljóma samt ansi óspennandi; margir panta sér bara borð á einhverjum pöbb, eða jafnvel veitingastað og borða þar jólamat á aðfangadagskvöld og detta jafnvel soldið vel í það, vakna svo daginn eftir og opna pakka. Pfff...

En nóg í bili. Ég ætla að drífa mig út í kuldann..brr

dB

bloggleysi?

09. nóvember 2007 klukkan 12:15
Þetta bloggleysi á mér er agalegt !!!!!!! Ég bara kem ég aldrei í það að setjast bara niður og blogga. Og aldrei kem ég mér í það að setja inn myndir á flickr síðuna mína, sem Ragnheiður er búin að grátbiðja mig um trekk í trekk. Ég ætti bara að skammast mín ! Ekkert flóknara en það!!
Ég sit hérna ein heima á föstudegi, það er kalt úti þannig ég nenni ekki að klæða mig til að fara útí banka, og ég nenni heldur ekki að læra, vaska upp, búa um nér hengja upp þvottinn...töff ég. Þannig kannski segja má að ég sé löt? Já orðum það þannig.

Um helgina síðustu var besta og mesta Íslendingapartý sem ég hef á ævi minni farið í. Við vorum svona 12 manns komin saman heima hjá Jökli og Freydísi og djömmuðum við það langt frammá nótt..meira samt langt frammá morgun.....
Minni líka á að svalirnar þeirra er stærri en íbúðin sjálf, sem er alltaf fjör. Án gríns, þau gætu farið út að skokka þar á hverjum morgni...
Svo er þessi vika aðallega búin að fara í það að vera í skólanum og læra...afskpalega lítið búið að drífa mína daga, eða hvernig sem maður segir þetta orðatiltæki.
Svo styttist óðum í jólin...sem er ekki leiðinlegt, þá eignast ég líka frændsystkini!!

En ég ætla að hoppa uppúr letinni og gera eitthvað(right)

dr

Ok...

11. september 2007 klukkan 15:25
"Hey goughy boy u awake n lol wat u uo 2 nbbe u still got my pic n Imao tb carly  usin my mams phne x."

Já, ég fékk þetta í sms-i um daginn. Fyrst hringdi eikkað númer eldsnemma um morguninn, ég vissi ekki hvað var að gerast og pældi ekkert í því. Svo fékk ég þetta sms seinna um daginn.
Þetta er greinilega vitlaust númer sem þessi stelpa, sem ég er búin að ákveða að þetta er, fékk. En GUÐ MINN GÓÐUR, kann fólk í Bretlandi ekki að tala? Ég skil ekki samhengið, og ekki fullt af orðum í þessu sms-i.
Þannig þar hafiði það; það er ekkert skrýtið að fólk skilur oft ekkki hvað bretar eru að segja !


Later
Drr

Kall með sílikon?

09. september 2007 klukkan 12:51
Ég var orðin of sein í skólann um daginn, þannig ég ákvað að taka túbið, ég tek venjulega strætó...en alllllaaaaveganna, þá var ég í túbinu og sat á móti manni. Semsagt svona frekar mikið subbulegum, mjög grönnum manni, með tagl, semí grátt hár, gleraugu, bara í einu orði mjög svona subbulegur og útgangslegur. Svo tók ég eftir, að hann var með brjóst ! Hann var í mjööög flegnum bol, brjóstarhaldara sem sást mjög vel uppúr bolnum, og mjög greinilega brjóst !!! Þetta fannst mér mjög skrýtið að sjá, ég hef séð kalla sem eru bara mjög kallalegir með skegg og þannig, en svo í pilsi eða háhæluðum skóm eða eitthvað, en aldrei kall með skegg og alles, og brjóst !!!!!!!! Og nei þetta var ekki bara rosalega karlaleg kona, því hann var í MJÖG þröngum gallabuxum, og hann var með typpi. Já gott fólk, maður sér undarlega hluti og undarlegt fólk hérna í London.

Ég, Friðrik, Brynja, Jói, Jökull, Helgi og Elva fórum í keilu í gærkvöldi, það var GEÐVEIKT ! Það er ekkert smá gaman í keilu. Mig minnti alltaf að það hafi verið gaman, en ekki svona gaman. Ég tapaði reyndar, en ég var samt með bestu move-in.

Ég vaknaði svo í morgun og bjó til pönnukökur ! Á sunnudagsmorgni !Ég elska að búa til pönnukökur!

Ég er líka búin að kaupa flug heim til Íslands. Ég kem 24. september, og fer aftur hingað (heim) 1 október. Byrja í skólanum aftur 2 október. Harkan sex.
MH-kórinn er reyndar í Kína akkurat á þessum tíma, þannig það fækkar um helling sem ég vil hitta á Íslandi, en það eru nú alveg nokkrir sem verða þarna. Þannig einsog alltaf, þá verður mega að koma heim í smá heimsókn.

Adios, ég er farin að læra

deebz

03. september 2007 klukkan 18:49
Ég er einfaldlega ekki nógu góður bloggari, ég er búin að komast að því. Ég gleymi bara svo oft að ég er með blogg, og svo þegar ég man það, þá sest ég niður og ætla að skrifa eitthvað, en þá er bara svo margt búið að gerast að: a) ég ómögulega nenni að skirfa um allt sem er búið að gerast, eða b) Ég þjáist af minnisleysi þessar mínútur sem ég ætla að skrifa eitthvað.
Þannig ég biðst afsökunar á því.

Það býr einhver undarlega manneskja, eða vera rétt hjá okkur, sem hefur öskrað tvær nætur á síðustu vikum. Það er krípí, en samt afskaplega áhugavert, því þetta eru svo undarleg og regluleg HÁ öskur.

Ég er búin að  vera að læra á Illustrator forritið og Photoshop mikið síðustu daga, af því ég er að gera barnabók sem ég nota þessi forrit í, og er óhætt að segja að ég er bara helvíti góð !

Það er kalt úti, sumarið er ekki búið að vera að standa sig í bretlandi.

Ég komst hins vegar að því í sumar að ég er góður surfari, og JÁ, það er surfað í bretlandi.

Ég er að fara að búa til skál, sem ég hlakka mikið til, og er á fullu að brainstorma hugmyndir um hvernig hún ætti að líta út.

Beastie boys eru að spila í London í næstu, eða þarnæstu viku og mig langar að fara.

Ég mæli EKKI, ég endurtek, EKKI með mynd sem heitir The walker og er með Woody Harrelson í aðalhlutverki. HÚN ER LEIÐINLEG. Við gerðum nokkur heiðarlega tilraun við það í gærkveldi, og GMG sko. Ekki nema þú sért hluti af upper class fólki í Washington, eða hrífst af þeirra lífsstíl og vilt tala asnalega.

Jæja ég vil nú samt ekki skíta of mikið yfir þessa mynd, hún var kannski ágæt. Samt ekki. Vonandi særði ég engann með dómum mínum.

Helga kom hér í nokkra klukkutíma í síðustu viku, beint frá Thailandi, og sýndi okkur myndir af GEÐVEIKUM ströndum þar..ahh Thailand er fallegt land.

Nýjasti gripurinn á þessu heimili er HITCHCOCK safnið; eða 14 myndir, aðal myndirnar hans. Við höfum bara horft á eina mynd enn sem komið er. Ég man eftir því að hafa séð brot úr einni mynd með honum, BIRDS, fyrir svona 10 árum og þá var ég með systur minnir. Hún var einstaklega ógeðsleg. Ég held ég sé tilbúin að horfa á hana núna samt.

Ég ætla að fara að læra meira á þessi forrit. I am loving them.
Later

db


30. ágúst 2007 klukkan 08:52
Jáhá.
Í gærkvöldi lentum við í rosalegu...sem var síðan ekkert rosalegt, en það hefði getað orðið það, OG mér leið einsog í bíomynd.
Við vorum semsagt búin að heyra í svona reykskynjara í einhverjar tíu mínútur, sem virtist koma frekar nálægt okkur. Ég pældi samt ekkert í því. Svo heyrðum við einhverja gaura vera að banka á hurðina á móti okkur, þar sem ung kona með barn býr. Reykjskynjara-hljóðið kom semsagt þaðan. Hún var ekki heima, þannig við fórum öll út úr byggingunni, sáum reyk koma úr glugga í eldhúsinu hennar. Ok núna kemur semsagt bíómyndaparturinn; svo komu svona slökkviliðsbílar, tveir stórir, og gaurar hlaupandi út úr bílnum, með svona slöngu og alles.
EEEn sem betur fer var þetta ekki stór eldur, en þeir sögðu að það hafi kviknað i einhverju inn í skáp, einhverju rusli sem að mér skilst svona álbakki hafi verið í og hann enn heitur.....þannig já, það getur kviknað í slíku, damn.

Svo núna í morgun kom konan sem býr þarna, hún hafði semsagt ekki komið heim í nótt og kemst ekki núna inn í íbúðina sína.

Later

DB

Lélegur bloggari???????

21. ágúst 2007 klukkan 19:14
Ég er búin að fá miklar skammir og mörg blótyrði yfir því hversu lélegur bloggari ég er, þess vegna hef ég ákveðið að koma með eina dúndurlanga (eða eins langa og ég nenni)-færslu núna.
Það er bara varla að ég viti hvar ég á að byrja.
Ég fór til Íslands í lok júlí. Það var allveg frekar mikið gaman, Íslensk sumur eru náttúrulega bezt í heimi, það er bara þannig. Það var að minnska kosti betra veður þar (þó margir segja að það hafi búið að vera miklu betra áður en ég kom), en er búið að vera hérna í London í sumar. Okkar sumar kom greinilega í apríl, þegar það var alveg 26 stiga hiti og sól. Reyndar eru búnir að koma nokkrir afskaplega góðir dagar, þannig ég ætla að hætta að kvarta yfir veðrinu núna.
Það er alveg frekar mikið að gera í skólanum núna, þessi önn klárast í lok september, þá ætla ég að skella mér heim í nokkra daga. Á næstu önn ætla ég svo að taka fleiri áfanga, svo ég geti klárað fyrr og sparað pening.
En það sem er svona eftirminninlegast í huga mér núna er að við, semsagt ég og Friðrik, Brynja og Jói skelltum okkur til Belgíu síðasta fimmtudag. Þar fórum við á tónlistarhátíðina PUKKELPOP, sem stóð fram á sunnudag. VÁÁÁÁ sko.....hvar get ég byrjað að segja frá henni ! Til að byrja með tjölduðum við, keyptum bjór og vorum stanslaust á GEÐVEIKUM tónleikum í þrjá daga ! Hversu geðveikt er það???? Nokkrar af hljómsveitunum sem ég sá: Smashing Pumpkins, Devandra Banhart, Justice, Armand Van Helden, Sonic Youth, Albert Hammond Junior, The streets, Kings of Leon, Tool, The Shins, Silverchair,The Hives, Arcade Fire, Architecture in Helsinki, Basement Jaxx...og þetta heldur áfram og áfram....

Svo komu líka Anna Dúna og Frikki í heimsókn í viku. Það var mega stuð, Við reyndum að sýna þeim sem mest, og þau fóru meir aa segja ein í lestina !!!!!!!! Húrra fyrir þeim ! Á öðrum degi...össs ! En já, við sáum líka Abbey Road, sem var bara mjög merkilegt, eins og það var nú samt líka ómerkilegt.
Á sama tíma og þau voru hérna Kom Calista og kærastinn hennar, sem Calista sem var stelpan sem ég bjó hjá í Ástralíu. Það var mjög skrýtið að hitta hana eftir svona langan tíma, 3 ár, en við náðum bara vel saman.

Og já, ég varð 21 árs 11 ágúst.....vúhú !!!!!!!!!

Þetta er nú nóg í bili. Ég lofa að blogga meira mjöööööög fljótt.

Prófíll

  • Nafn: Droplaug Benediktsdóttir
  • Staður: London

Auglýsing

Leikur dagsins

Atburðarteljari